ÍSAK Halldórsson og Helga Dögg Helgadóttir, Dansfélaginu Hvönn, eru á leið til Austurríkis á fjögurra daga opna keppni í samkvæmisdönsum dagana 29. september til 1. október nk. en völdum pörum frá 12 þjóðum var boðið að senda keppendur.
ÍSAK Halldórsson og Helga Dögg Helgadóttir, Dansfélaginu Hvönn, eru á leið til Austurríkis á fjögurra daga opna keppni í samkvæmisdönsum dagana 29. september til 1. október nk. en völdum pörum frá 12 þjóðum var boðið að senda keppendur. Þess má geta að Ísak og Helga Dögg komust m.a. í úrslit í suður-amerískum dönsum og höfnuðu í 5. sæti af um 200 keppnispörum í ágúst sl. í keppni í Þýskalandi, segir í fréttatilkynningu.