Stuðningsmenn Hauka fögnuðu meistaratitli sl. keppnistímabil. Hvað gera þeir í nýju glæsilegu húsi Hauka á Ásvöllum í vetur?
Stuðningsmenn Hauka fögnuðu meistaratitli sl. keppnistímabil. Hvað gera þeir í nýju glæsilegu húsi Hauka á Ásvöllum í vetur?
HANDKNATTLEIKSMENN hefja leiktíð sína af alvöru í kvöld en þá verður flautað til leiks í 1. deild karla á Íslandsmótinu í handknattleik. Eins og ávallt ríkir mikil spenna og eftirvænting hjá handknattleiksáhugamönnum fyrir veturinn og sú spenna kemur til með að magnast þegar á Íslandsmótið líður því fyrirfram reikna menn almennt með jöfnu og spennandi móti.

Haukar og Afturelding eiga titla að verja. Haukar hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum á síðustu leiktíð eftir sigur á Fram en Afturelding varð deildarmeistari. Báðum þessum liðum er spáð í toppbaráttu í vetur en ljóst má vera að fleiri lið koma til með að blanda sér í þá baráttu.

Morgunblaðið fékk Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfara til að meta liðin tólf í deildinni og með fylgir spá hans um stöðu liðanna eftir deildarkeppnina.

Breiðablik 12. sæti

"Breiðablik er það lið sem ég hef séð minnst til á undirbúningstímabilinu en hef samt heyrt mest af. Mér sýnist á öllu að veturinn verði Blikunum þungur. Þeir gætu að vísu nartað eitthvað í liðin þegar líða fer á mótið en það verður einfaldlega of seint. Breiðablik var ekki með á Reykjavík Open og ég hefði haldið að þeir hefðu þurft að vera með þar."

HK 11. sæti

"Ég byggi þessa spá mína um HK á að liðið hefur misst sterka leikmenn. Sigurður Sveinsson er hættur og hann var náttúrlega betri en enginn í þessu liði. Þá eru Hjálmar Vilhjálmsson og Atli Samúelsson farnir í önnur lið og mér sýnist að það sé búið að höggva allt of mikil skörð í liðið. Kúbumaðurinn sem HK fékk hefur ekki sýnt hingað til að hann sé af þeim styrkleika sem HK-menn hefðu þurft á að halda."

ÍR 10. sæti

"ÍR-ingar hafa orðið fyrir blóðtöku þar sem leikstjórnandinn og þeirra besti maður undanfarin ár, Ragnar Óskarsson, er horfinn á braut. ÍR-ingar eiga marga unga og efnilega stráka sem koma inn í staðinn en ég held samt að missir þeirra sé of mikill og þeir verði á þessum slóðum."

Stjarnan 9. sæti

"Ef Stjörnuliðið smellur vel saman getur það vel orðið ofar en í níunda sætinu en það er samt eitthvað sem segir mér að Stjarnan eigi erfitt uppdráttar. Magnús Sigurðsson, sem kom heim frá Þýskalandi, er búinn að vera mikið meiddur í undirbúningnum og Hilmar Þórlindsson er farinn frá liðinu. Mér sýnist að Arnar Pétursson eigi að vera í skyttustöðunni og Sigurður Viðarsson leikstjórnandi þannig að Stjörnumennirnir eru ekki eins öflugt skyttulið og þeir hafa verið."

Valur 8. sæti

"Mér sýnst að Valsmenn eigi í vandræðum með markvarðarstöðuna. Petkevicius sem kom frá FH er meiddur og þeir eru komnir með Georgíumann í staðinn. Hann er að koma inn á síðustu stundu og þarf aðlögunartíma. Hægri vængurinn hefur tekið breytingum. Valdimar Grímsson og Valgarð Thoroddsen eru komnir til baka og það kemur til með að styrkja liðið. Valsmenn ollu vonbrigðum í fyrra. Þeir komust ekki í úrslitakeppnina og í ár þurfa þeir að glíma við þann draug."

Grótta/KR 7. sæti

"Grótta/KR hefur fengið mikið af mannskap og ég verð að segja það að lið þeirra lofar mjög góðu miðað við það sem ég hef séð til þeirra. Þetta eru sterkir leikmenn sem Grótta/KR hefur fengið og mér sýnist liðið vel mannað í öllum stöðum. Lettinn sem hefur leikið með liðinu hefur tekið framförum og það kæmi mér ekki á óvart ef Grótta/KR yrði spútniklið ársins."

ÍBV 6. sæti

"ÍBV hefur misst Barisic frá síðasta ári en hefur fengið annan útlending sem er kannski ekki eins öflugur. Jón Andri Finnsson og Eymar Krüger hafa bæst í hópinn og ef eitthvað er þá eru Eyjamenn með sterkari hóp en í fyrra því margir ungir strákar eru að koma. Spáin mín með ÍBV byggist á því að liðið er geysisterkt á heimavelli og hann fleytir Eyjamönnum langt í vetur."

FH 5. sæti

"FH-ingarnir hafa styrkt sig nokkuð. Þeir hafa fengið Bergsvein Bergsveinsson í markið og Héðin Gilsson og allir vita að þessir leikmenn geta breytt heilmiklu. Þá er vinstrihandarskyttta frá Króatíu á leiðinni til liðsins og ef hann fellur vel inn í leik liðsins gæti FH-liðið orðið sterkt í vetur. Þá má ekki gleyma því að Guðmundur Karlsson er tekinn við þjálfun FH og menn vita að hann kann ýmislegt fyrir sér."

Fram 4. sæti

"Framararnir eru reyndar búnir að missa sterka pósta úr liði sínu. Titov er hættur og Pauzolis farinn á Selfoss. Rússinn Fedukin er hins vegar ótrúlega seigur að búa til nýtt lið og nú þarf hann að spila annað varnarafbrigði út af breyttum mannskap. Það hafa verið hnökrar á leik Fram á undirbúningstímanum en þeir voru nokkuð sannfærandi á móti Haukunum í meistaraleiknum. Mín tilfinning er sú að Fedukin búi til nokkuð gott lið hjá Fram eins og í fyrra."

KA 3. sæti

"KA-menn hafa verið að gera einna best í þessum leikjum sem ég hef séð. KA-liðið vinnur óhemjuvel sem lið, leikmenn liðsins eru baráttuglaðir og gefast aldrei upp. Það sem háir því mest er að það er lágvaxið og verður þar af leiðandi að spila mjög framarlega vörn og þá er hópurinn ekki mjög stór. Ungu strákarnir í KA fengu margir hverjir mikla eldskírn í fyrra og það kemur þeim til góða í vetur og ekki síður að heimavöllurinn, sem er einn sá besti á landinu."

Haukar 2. sæti

"Ástæðan fyrir því að ég set Haukana þetta ofarlega er einfaldlega sú að þeir urðu Íslandsmeistarar í fyrra. Það hafa ekki orðið miklar breytingar á þeirra mannskap en það er nýr þjálfari kominn sem hefur mikla reynslu og hann ætti að geta spilað vel úr þeim mannskap sem er fyrir. Það verður örugglega pressa á Viggó því hann er ekki með síðra lið í höndunum en Guðmundur Karlsson, sem gerði þá að meisturum á síðasta tímabili. Ég er viss um að þátttaka Haukanna í Evrópukeppninni á eftir að reynast þeim vel í upphafi mótsins."

Afturelding 1. sæti

"Ég set Aftureldingu í fyrsta sætið af því að mér finnst að liðið sé með mannskapinn sem er búinn að vera mest saman. Það breytir ekki neinu þó svo að nýr þjálfari sé tekinn við liðinu því Mosfellingar eru með "rútinerað" lið. Bjarki Sigurðsson þjálfari þekkir hvern einasta leikmann og það ætti að vera auðvelt fyrir hann að skálda sínu til viðbótar. Það eru ekki miklar breytingar í Mosfellsbænum. Reynir Reynisson ætti að fylla skarð Bergsveins í markinu og Páll Þórólfsson kemur í stað Jóns Andra."

Stöngin út eða stöngin inn

"Ég mundi segja að á þessum leikjum sem ég er búinn að sjá núna með haustinu þá eru liðin mjög jöfn og þetta er oft spurningin hvort þau eru að skjóta stöngina inn eða stöngina út. Leikir liðanna í haust hafa verið ákaflega jafnir og það gefur fyrirheit um skemmtilegt Íslandsmót. Nú er þetta þannig í vetur að engin jafntefli verða látin gilda og það ætti að færa enn meiri spennu í leikina," segir Þorbjörn.

Hvernig myndir þú meta styrkleika deildarinnar miðað við á síðasta tímabili?

"Ég myndi halda að deildin ætti að vera ívið sterkari í ár. Bæði er það að sterkir leikmenn eru komnir heim eftir dvöl erlendis og eins eru ungu strákarnir sem fengu eldskírn í fyrra orðnir betri og reyndari. Það sem mér finnst jákvæðast landsliðsins vegna er að mörg lið eru að spila fjölbreyttan varnarleik. Meirihlutinn er að spila framliggjandi varnir, sem er komið mikið í alþjóðlegan handbolta," sagði Þorbjörn.

Guðmundur Hilmarsson skrifar