STANISLAV Szczyrba, þjálfari Völu Flosadóttur, hélt til Svíþjóðar strax í gærmorgun, daginn eftir að Vala hafði unnið bronsverðlaun í stangarstökkskeppni Ólympíuleikanna.

STANISLAV Szczyrba, þjálfari Völu Flosadóttur, hélt til Svíþjóðar strax í gærmorgun, daginn eftir að Vala hafði unnið bronsverðlaun í stangarstökkskeppni Ólympíuleikanna. Stanislav hefur í mörg horn að líta heima fyrir, er að þjálfa stóran hóp frjálsíþróttamanna fyrir utan Völu og Þóreyju Eddu Elísdóttur, og gat ekki látið hann sitja á hakanum lengur. Þá var hans verkefni á Ólympíuleikunum lokið með frábærri frammistöðu Völu og því var honum ekki til setunnar boðið.