VEL var tekið á móti Völu Flosadóttur, bronsverðlaunahafa í stangarstökki, þegar hún kom í ólympíuþorpið eftir miðnætti aðfaranótt þriðjudags eftir stórkostlegan dag á íþróttavellinum.

VEL var tekið á móti Völu Flosadóttur, bronsverðlaunahafa í stangarstökki, þegar hún kom í ólympíuþorpið eftir miðnætti aðfaranótt þriðjudags eftir stórkostlegan dag á íþróttavellinum. Allir Íslendingarnir sem eru í þorpinu tóku á móti henni með kertaljósum og húrrahrópum. Þá hafði verið strengdur borði utan um hús íslenska liðsins sem á var letrað; Til hamingju Vala.