MIKLAR líkur eru á að Hreiðar Bjarnason úr Breiðabliki og Sturla Guðlaugsson úr Fylki gangi til liðs við bikarmeistara ÍA fyrir næsta tímabil. Þeir eru báðir Skagamenn og léku með ÍA í yngri flokkunum en hafa ekki spilað með meistaraflokki félagsins.
MIKLAR líkur eru á að Hreiðar Bjarnason úr Breiðabliki og Sturla Guðlaugsson úr Fylki gangi til liðs við bikarmeistara ÍA fyrir næsta tímabil. Þeir eru báðir Skagamenn og léku með ÍA í yngri flokkunum en hafa ekki spilað með meistaraflokki félagsins. Hreiðar hefur verið lykilmaður hjá Blikum undanfarin ár og markahæsti leikmaður þeirra tvö síðustu tímabil en hann spilaði sinn fyrsta A-landsleik í sumar. Sturla hefur leikið með Fylki tvö undanfarin ár og spilaði 12 leiki í efstu deild í sumar með Árbæjarliðinu.