HALDIN verður alþjóðleg hundasýning Íshunda í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ laugardaginn 9. júní nk. og hefst sýningin kl. 9:00 og stendur til kl. 19:00. Íshundar voru stofnaðir 27. apríl árið 2000 og er félagið aðili að alþjóðlegum samtökum.

HALDIN verður alþjóðleg hundasýning Íshunda í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ laugardaginn 9. júní nk. og hefst sýningin kl. 9:00 og stendur til kl. 19:00.

Íshundar voru stofnaðir 27. apríl árið 2000 og er félagið aðili að alþjóðlegum samtökum. Þetta verður fyrsta sýning Íshunda, aðgangseyrir er 500 kr. fyrir fullorðna en frítt fyrir börn. Veitingar á staðnum.