HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra sat utanríkisráðherrafund Eystrasaltsráðsins í Hamborg í Þýskalandi fimmtudaginn 7. júní sl., en Þjóðverjar gegna formennsku í Eystrasaltsráðinu í ár.

HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra sat utanríkisráðherrafund Eystrasaltsráðsins í Hamborg í Þýskalandi fimmtudaginn 7. júní sl., en Þjóðverjar gegna formennsku í Eystrasaltsráðinu í ár. Á fundinum var einkum rætt um svæðasamstarf í Norður-Evrópu, hina norðlægu vídd Evrópusambandsins og samstarf milli landanna á svæðinu.

Við lok fundarins undirrituðu ráðherrarnir samkomulag um miðlun geislunarupplýsinga milli landanna.

Í ræðu Halldórs Ásgrímssonar kom fram mikilvægi svæðasamtaka í Norður-Evrópu og hinnar norðlægu víddar Evrópusambandsins. Utanríkisráðherra lagði áherslu á að samræma þyrfti verkefni og auka samvinnu svæðastofnana um málefni norðlægu víddarinnar, og sagði mikla möguleika á beinu samstarfi fyrirtækja, félagasamtaka, sveitarstjórna og fleiri aðila á svæðinu. Í því samhengi gat utanríkisráðherra þess að Norðurlandasamstarfið hefði rutt brautina fyrir aukið samstarf ríkja við Eystrasalt, segir í fréttatilkynningu.

Utanríkisráðherrarnir áttu óformlegan fund í hádeginu þar sem aðallega var rætt um málefni Mið-Austurlanda, en Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, er nýkominn frá Ísrael og Palestínu þar sem hann leitaðist við að koma á sáttum milli stríðandi fylkinga.

Yfirlýsingu fundarins er að finna á heimasíðu Eystrasaltsráðsins á slóðinni www.baltinfo.org