Brad Pitt og Jennifer Aniston.
Brad Pitt og Jennifer Aniston.
LEIKKONAN Jennifer Aniston hefur nú staðfest þann orðróm um að hún eigi von á barni með eiginmanni sínum, Brad Pitt. Þetta er fyrsta barn Aniston en hún er 32ja ára.

LEIKKONAN Jennifer Aniston hefur nú staðfest þann orðróm um að hún eigi von á barni með eiginmanni sínum, Brad Pitt. Þetta er fyrsta barn Aniston en hún er 32ja ára.

Handritshöfunda Friends-sjónvarpsþáttanna bíður nú það verkefni að breyta handriti næstu þáttaraðar þannig, að persóna Aniston, Rachel, verði einnig barnshafandi.

Aniston vill sjálf fá Pitt í hlutverk barnsföðursins en ráðamenn þáttarins eru ekki eins spenntir, þar sem launataxti hans er talsvert hærri en þeir eiga að venjast.

Líklegt þykir að hinum samkynhneigða föður Chandlers verði eignað barnið.