½ Leikstjóri: Steve Rash. Aðalhlutverk: Jamie Foxx, Nia Long. Bandaríkin 1999. Skífan. Bönnuð innan 12 ára.

UNGUR blökkumaður á uppleið flækist inn í rán á bensínstöð dýpst í Suðurríkjunum, sem vitanlega eru ekki kjörlendur blökkumanna.

Myndin fellur sem sagt í flokk þeirra gamanmynda sem kenna má við þorsk á þurru landi. Söguþráðurinn er í hæsta máta skrykkjóttur og velflestur vandræðahátturinn, sem á að vekja hlátur, fellur kylliflatur og ekki nýtur myndin góðs af leikaraliðinu, sem virðist mestallt hafa verið fengið á skransölu einhvers staðar í útjaðri Hollywood.

Þessa ber að varast nema í áberandi myndbandaþurrki.

Heiða Jóhannsdóttir