Ragnar Sær Ragnarsson
Ragnar Sær Ragnarsson
Ragnar Sær Ragnarsson fæddist 3. ágúst 1961 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, eftir það lauk hann námi sem leikskólakennari frá Fósturskóla Íslands 1986.

Ragnar Sær Ragnarsson fæddist 3. ágúst 1961 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, eftir það lauk hann námi sem leikskólakennari frá Fósturskóla Íslands 1986. Hann hefur einnig lokið námi í hótelstjórnun frá Viðskiptaskólanum 1990, prófi frá Endurmenntunarstofnun HÍ í rekstrar- og viðskiptafræði 1997 og námi í opinberri stjórnsýslu og stjórnun frá sömu stofnun. Hann vann við hótelstjórn um tíma, var við dagskrárgerð hjá RÚV og rak skóladagheimilið Höfn í Reykjavík frá 1988 til 1998 er hann gerðist sveitarstjóri Biskupstungnahrepps. Ragnar er kvæntur Unni Ágústu Sigurjónsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tíu ára dóttur.

Ragnar Sær Ragnarsson fæddist 3. ágúst 1961 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, eftir það lauk hann námi sem leikskólakennari frá Fósturskóla Íslands 1986. Hann hefur einnig lokið námi í hótelstjórnun frá Viðskiptaskólanum 1990, prófi frá Endurmenntunarstofnun HÍ í rekstrar- og viðskiptafræði 1997 og námi í opinberri stjórnsýslu og stjórnun frá sömu stofnun. Hann vann við hótelstjórn um tíma, var við dagskrárgerð hjá RÚV og rak skóladagheimilið Höfn í Reykjavík frá 1988 til 1998 er hann gerðist sveitarstjóri Biskupstungnahrepps. Ragnar er kvæntur Unni Ágústu Sigurjónsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tíu ára dóttur.

Bjartir dagar heitir menningardagskrá sem sveitarstjórn Biskupstungnahrepps stendur fyrir dagana 9. og 10. júní, í samvinnu við íbúa hreppsins sem margir hverjir opna almenningi hús sín þessa daga. Ragnar Sær Ragnarsson er sveitarstjóri í Biskupstungum. Hann var spurður um markmið þessara aðgerða?

"Þetta er kannski hvað mest gert til þess að kynna sveitina og þá þjónustu og menningarstarf sem þar er rekið."

-Hvað gefst fólki tækifæri til þess að gera og sjá þessa daga?

"Af mörgu er að taka. Í Skálholti verða gönguferðir báða dagana á söguslóðir undir leiðsögn séra Guðmundar Óla Ólafssonar. Árni Þ. Árnason verður með erindi um veraldarvafstur Skálholtsbiskupa kl. 16. á laugardag. Tónleikar verða haldnir í Skálholtsdómkirkju, Hilmar Örn Agnarsson leikur á orgel, Jóhann Stefánsson á trompet og Eyrún Jóhannesdóttir syngur einsöng kl. 17 á laugardag. Þar verða fluttar nokkrar af helstu perlum kirkjutónlistarinnar. Á sunnudag á sama tíma syngur Gréta Jónsdóttir einsöng, Douglas Brotchie leikar á orgel. Tíðagjörð verður í kirkjunni báða dagana kl. 18. Miðaldahlaðborð verður á boðstólum á laugardagskvöld og 17. aldar kvöldverður á sunnudagskvöldið ef þátttaka verður næg. Fyrra kvöldið mun Sigurður Sigurðarson vígslubiskup ræða um Þorlák biskup helga og síðara kvöldið mun dr. Pétur Pétursson rektor ræða um Þórð Þorláksson Skálholtsbiskup, einnig verða tónlistaratriði. Í Hótel Brattholti á laugardag kl 15 mun Arnór Karlsson segja sögur af Sigríði Tómasdóttur, verndara Gullfoss. Þar eru líka myndlistarsýningar. Gyða L. Jónsdóttir leirlistakona sýnir verk sín og Elín Rebekka myndlistarkona sýnir sín verk. Íþróttamót hestamannafélaganna Loga, Smára og Trausta verður haldið í Hrísholti og hefst kl. 10 árdegis á sunnudag."

-Hvað með opnu húsin?

"Opið hús verður í félagsheimilinu Aratungu í Reykholti í Biskupstungum. Þar verður harmonikutónlist og leika þeir Garðar Olgeirsson og Bjarni Sigurðsson. Barnakór Biskupstungna kemur og syngur á laugardag og Skálholtskórinn syngur á sunnudag. Þá verður Jón Adolf trélistamaður með handverkshorn. Hann mun tálga út á staðnum en Ragnhildur Magnúsdóttir mun einnig sýna verk sín og fleiri. Kaffiveitingar verða á staðnum."

-Verða heimili opin fyrir heimsóknir almennings?

"Ekki beint inn í stofu heldur verða vinnustaðir fólksins opnir fyrir heimsóknum. Sem dæmi má nefna Espiflöt sem selur afskorin blóm, Akur sem er með lífrænt ræktað grænmeti, Furubrún sem er er með trjáplöntur og Ekru sem selur sumarblóm. Síðan er hægt að heimsækja húsdýragarðinn Slakka í Laugarási, þar sem m .a. má finna öll íslensku húsdýrin. Kaffi Klettur er með markaðstjald og veitingar og þar getur yngsta kynslóðin fengið að fara á hestbak. Frítt verður í sund bæði í Reykholti og upp við Geysi. Með þessu framtaki verum við hér í Biskupstungum að bjóða fólki að koma og njóta þessa besta sem við eigum upp á að bjóða og jafnframt að sýna fram á hina fjölbreyttu afþreyingarmöguleika sem bjóðast í þessari sveit."

-Eru margir íbúar í Biskupstungnahreppi?

"Þeir telja í dag um 550 manns. Helstu atvinnugreinar eru garðyrkja, hefðbundinn búskapur og ferðaþjónusta."

-Hafið þið áður staðið fyrir svona fjölbreyttri menningarviku og opnu húsi?

"Já, við héldum svona dag 1999 og þá rigndi svolítið og dagarnir fengu viðurnefnið: Bjartir - nei blautir, dagar. Nú ætlum við að lofa skemmtilegri stund eins og raunin varð á fyrrnefndum degi."

-Hvernig er veðurspáin?

"Hún er góð, það á að verða milt og gott veður og við væntum því fjölda fólks í heimsókn. Um þúsund manns komu í sveitina á samskonar uppákomu 1999 og þá hefðum við varla getað tekið við fleirum, nú eru aðgerðir á fleiri stöðum svo við getum tekið við fleira fólki."

-Hvernig er atvinnuástand í þessari sveit?

"Það er gott. Mikið er byggt í sveitinni og íbúum fjölgaði í fyrra um 8%."

-Hverjar eru helstu framkvæmdir sem nú standa yfir?

"Það er helst frá því að segja að við erum að leggja nýja vatnsveitu um sveitina og nýlega var byggt íþróttahús til þess að þjóna hér æskufólki.

Hérna eru byggð árlega um 50 sumarhús og nú eru orðin um 550 sumarhús alls í hreppnum. Þetta hefur skapað mikla atvinnu fyrir iðnaðarmenn og styrkt mjög verslun og þjónustu. Sundlaugin okkar í Reykholti er mjög vinsæl. Um tuttugu þúsund manns koma þangað árlega. Vaxandi áhugi er hér í sveitinni á skógrækt og hafa sumir bændur hafið nytjaskógrækt."