ÓSKAR Bergmann Albertsson opnar sýningu á pennateikningum í Hinu húsinu, Gallerí Geysi, á morgun, laugardag, kl. 16. Við opnunina verður lesið úr nýútkominni ljóðabók Óskars.

ÓSKAR Bergmann Albertsson opnar sýningu á pennateikningum í Hinu húsinu, Gallerí Geysi, á morgun, laugardag, kl. 16. Við opnunina verður lesið úr nýútkominni ljóðabók Óskars. Hún hefur að geyma sjö ljóð sem eiga að sýna þann tíðaranda sem Óskar hefur lifað í og þá trú sem hann hefur á mannfólkinu.

Sýningin er opin virka daga kl. 9-17 og stendur til 23. júní.