ÁRLEG veiði- og skemmtiferð barnahóps Gigtarfélags Íslands verður haldin að Reynisvatni laugardaginn 9. maí nk. Mæting við Reynisvatn kl. 10:30. Grillað verður kl. 11:30 og við áætlum að vera á staðnum til kl. 14:00.
ÁRLEG veiði- og skemmtiferð barnahóps Gigtarfélags Íslands verður haldin að Reynisvatni laugardaginn 9. maí nk. Mæting við Reynisvatn kl. 10:30. Grillað verður kl. 11:30 og við áætlum að vera á staðnum til kl. 14:00. Allir eru velkomnir og það er ekki skilyrði að vera félagi í barnahóp Gigtarfélagsins. Nauðsynlegt er að hafa með sér veiðistöng. Verð kr. 750 á mann. Pylsa, gos og veiðileyfi innifalið.