FERÐAFÉLAGIÐ Útivist fer í kvöld, föstudagskvöldið 8. júní, í 4. ferð í fjallasyrpu sinni og er að þessu sinni gengið á Esju. Brottför er frá BSÍ kl. 20.00 og ekið að Esjubergi þaðan sem gengið er á Kerhólakamb (851 m.y.s.
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist fer í kvöld, föstudagskvöldið 8. júní, í 4. ferð í fjallasyrpu sinni og er að þessu sinni gengið á Esju. Brottför er frá BSÍ kl. 20.00 og ekið að Esjubergi þaðan sem gengið er á Kerhólakamb (851 m.y.s.), einn besta útsýnisstað Esjunnar. Verð er 1.000 kr f. félaga og 1.200 kr f. aðra. Þátttakendur geta einnig komið á eigin vegum að Esjubergi. Allir eru velkomnir í Útivistarferðir.