FORSVARSMENN Ríkisútvarpsins og Íslenskrar getspár undirrituðu 7. júní sl. samning um sýningar á útdrætti Lottósins og Víkingalottósins í Sjónvarpinu. Útsendingarnar verða framvegis á miðvikudögum kl. 18.54 og á laugardögum á sama tíma.
FORSVARSMENN Ríkisútvarpsins og Íslenskrar getspár undirrituðu 7. júní sl. samning um sýningar á útdrætti Lottósins og Víkingalottósins í Sjónvarpinu.
Útsendingarnar verða framvegis á miðvikudögum kl. 18.54 og á laugardögum á sama tíma.
Eins og kunnugt er færði Íslensk getspá þessar útsendingar yfir á Stöð 2 og Sýn fyrir nokkru.