ÁGÆTIS byrjun Sigur Rósar hefur nú verið tæp tvö ár á Tónlistanum og því vel við hæfi að platan sé í öðru sæti.
ÁGÆTIS byrjun Sigur Rósar hefur nú verið tæp tvö ár á Tónlistanum og því vel við hæfi að platan sé í öðru sæti. Ástæðan fyrir klifinu upp listann þessa vikuna tengist líklega spilamennsku þeirra pilta á upprisuhátíð Hljómalindar, Reykjavík mini-festival, á sunnudaginn var. Þar lék sveitin rómaða eingöngu nýtt efni og var mál manna að framhaldið verði jafn glæsilegt og byrjunin. Nú reynir hinsvegar á þolinmæðina því næstu plötu er ekki að vænta fyrr en á næsta ári.