NÝJA plata Rammstein var sú langsöluhæsta í síðustu viku - ef til vill ekki nema von þar sem nú er vika í tónleika þeirra hér á landi.
NÝJA plata Rammstein var sú langsöluhæsta í síðustu viku - ef til vill ekki nema von þar sem nú er vika í tónleika þeirra hér á landi. Miðar á seinni tónleika hljómsveitarinnar seldust upp á mettíma og varð þýska sleggjan því fyrsta erlenda rokksveitin til þess að fylla Laugardalshöll á tvennum tónleikum í röð. Mikil eftirvænting ríkir vegna tónleikanna og er platan líklegast leikin víða á hæsta styrk, svona rétt til þess að kasta olíu á tilhlökkunareldinn.