LANDSTJÓRI Kanada, frú Adrienne Clarkson, er væntanleg í einkaheimsókn til Íslands sem gestur Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands. Landstjórinn kemur til landsins ásamt föruneyti laugardaginn 9.

LANDSTJÓRI Kanada, frú Adrienne Clarkson, er væntanleg í einkaheimsókn til Íslands sem gestur Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands.

Landstjórinn kemur til landsins ásamt föruneyti laugardaginn 9. júní og heldur af landi brott áleiðis til Kanada sunnudaginn 10. júní. Með landstjóranum í för verður eiginmaður hennar, John Ralston Saul rithöfundur.