BÍL var ekið á stúlku þar sem hún var á gangi í Varmahlíð í Skagafirði í fyrrinótt. Ökumaður bílsins mun ekki hafa séð stúlkuna í rökkrinu fyrr en um seinan. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Sauðárkróki var bíllinn á lítilli ferð.
BÍL var ekið á stúlku þar sem hún var á gangi í Varmahlíð í Skagafirði í fyrrinótt. Ökumaður bílsins mun ekki hafa séð stúlkuna í rökkrinu fyrr en um seinan.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Sauðárkróki var bíllinn á lítilli ferð. Stúlkan varð fyrir framhorni bílsins og féll í götuna. Við það hlaut hún höfuðáverka og var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Meiðsli hennar reyndust þó ekki alvarleg.
Stúlkan mun hafa verið að ganga heim eftir dansleik í Miðgarði sem að sögn lögreglu fór vel fram.