ARCTIC Trucks hefur nú hafið innflutning á dekkjum frá hjólbarðaframleiðandanum Cooper-Avon.

ARCTIC Trucks hefur nú hafið innflutning á dekkjum frá hjólbarðaframleiðandanum Cooper-Avon. Fyrirtækið ætlar að leggja áherslu á vetrarlínuna frá Cooper-Avon en einnig stendur til að bjóða í framtíðinni sérsmíðuð keppnisdekk sem Avon-fyrirtækið er þekkt fyrir. Arctic Trucks leggur áherslu á að þjóna viðskiptavinum Toyota, P. Samúelssonar hf. Fyrirtækið hefur í þessu skyni komið sér upp fullkominni dekkjaaðstöðu í tengslum við standsetningu nýrra bíla.

Avon-dekkjafyrirtækið var stofnað árið 1885 og var fyrst skráð á enska hlutabréfamarkaðinn árið 1933. Sama ár hóf fyrirtækið samstarf við Rolls-Royce bílaframleiðandann sem stendur enn. Avon var fyrsti dekkjaframleiðandinn í heiminum til að öðlast breska gæðastaðalinn BS5750 og hinn þekkta gæðastaðal ISO 9001 fyrir vörur sínar og þjónustu. Árið 1997 keypti bandaríski dekkjarisinn Cooper Tire & Rubber Company Avon fyrirtækið og í framhaldi var Cooper-Avon Tyres Limited stofnað. Stofnun hins nýja fyrirtækis markaði tímamót í þjónustu og framleiðsluháttum Avon.