ELLEFU ára drengur varð undir afturhjóli dráttarvélar á Dalvík á föstudagskvöld. Hjólið mun hafa farið yfir annan fót hans, mjöðm og bak. Hann slapp þó við alvarleg meiðsl og er óbrotinn, samkvæmt upplýsingum frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.

Að sögn lögreglunnar á Dalvík virðist sem drengurinn hafi ætlað að hafa tal af ökumanni dráttarvélarinnar en einhvern veginn fallið undir vélina.

Lögreglan telur mildi að drengurinn féll á grúfu því verr hefði getað farið hefði hjólið farið yfir maga hans en ekki bak, þar sem bein verja bakið mun betur en magann.