Að sigra heiminn er eins og að spila á spil með spekingslegum svip og taka í nefið. (Og allt með glöðu geði er gjarna sett að veði.) Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til, því það er nefnilega vitlaust...
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
með spekingslegum svip og taka í nefið.
(Og allt með glöðu geði
er gjarna sett að veði.)
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það er nefnilega vitlaust gefið.
Steinn Steinarr.