MITSUBISHI sýnir Pajero Evolution, blending af rallbíl og jeppa, á bílasýningunni í Frankfurt í næsta mánuði. Fyrirtækið hefur sent frá sér teikningu af bílnum og sýnir hún afar óvenjulegan bíl sem þegar hefur verið þróaður fyrir rallkeppnir.
MITSUBISHI sýnir Pajero Evolution, blending af rallbíl og jeppa, á bílasýningunni í Frankfurt í næsta mánuði. Fyrirtækið hefur sent frá sér teikningu af bílnum og sýnir hún afar óvenjulegan bíl sem þegar hefur verið þróaður fyrir rallkeppnir. Búist er við að bíllinn verði boðinn almenningi innan tveggja ára. Bíllinn er með 3,5 lítra, V6, 280 hestafla vél og verður andlit Mitsubishi í framtíðinni í París-Dakar rallinu. Á sýningunni í Frankfurt sýnir Mitsubishi bílinn sem hreppti fyrsta sætið í París-Dakar fyrr á þessu ári og þar verður einnig ökuþórinn, Þjóðverjinn Jutta Kleinschmidt.