Þyngd Boeing 747 Rangar upplýsingar komu fram í fréttaskeyti AP -fréttastofunnar um óhapp á flugvellinum í Kúala Lúmpúr í fyrradag og greint var frá í myndatexta á forsíðu Morgunblaðsins í gær. Þar sagði að þyngd Boeing 747-400 þotu væri um 800 tonn.

Þyngd Boeing 747

Rangar upplýsingar komu fram í fréttaskeyti AP-fréttastofunnar um óhapp á flugvellinum í Kúala Lúmpúr í fyrradag og greint var frá í myndatexta á forsíðu Morgunblaðsins í gær. Þar sagði að þyngd Boeing 747-400 þotu væri um 800 tonn. Samkvæmt upplýsingum á vefsetri Boeing-verksmiðjanna er hámarks flugtaksþyngd 747-400 þotunnar tæp 400 tonn.