LÖGREGLAN í Borgarnesi segir talsverð brögð að því að flutningabílar aki þétt saman og myndi þannig langar lestir flutningabíla. Dæmi eru um að 5-6 bílar safnist í slíkar lestir.

LÖGREGLAN í Borgarnesi segir talsverð brögð að því að flutningabílar aki þétt saman og myndi þannig langar lestir flutningabíla. Dæmi eru um að 5-6 bílar safnist í slíkar lestir.

Lögreglan segir að þetta háttalag bílstjóranna skapi hættu við framúrakstur þar sem aðrir bílstjórar sjá illa fram fyrir flutningabílana. Ástæðan fyrir því að þessar lestir myndast er að sögn lögreglu sú að bílarnir leggja margir af stað á svipuðum tíma. Þá geri margir ökumenn sér alls ekki grein fyrir því að langar lestir flutningabíla geti valdið hættu.