BERNHARD ehf., umboðsaðili Honda og Peugeot, frumsýnir nýjan Peugeot 307 í nýjum og glæsilegum sýningarsal að Vatnagörðum 24 um helgina. Peugeot 307 hefur fengið mikið lof gagnrýnenda í Evrópu sem og á Íslandi.
BERNHARD ehf., umboðsaðili Honda og Peugeot, frumsýnir nýjan Peugeot 307 í nýjum og glæsilegum sýningarsal að Vatnagörðum 24 um helgina. Peugeot 307 hefur fengið mikið lof gagnrýnenda í Evrópu sem og á Íslandi. Útlit bílsins þykir marka tímamót í hönnun bíla í þessum stærðarflokki og tækni- og öryggisbúnaður bílsins hefur hingað til einungis sést í dýrustu bílum sem völ er á. Boðið verður upp á reynsluakstur.