Penelope Cruz ætlar að læra ljósmyndun.
Penelope Cruz ætlar að læra ljósmyndun.
SPÆNSKA blómarósin Penelope Cruz ætlar nú að taka sér frí frá leiklistinni til að sinna aðaláhugamáli sínu, ljósmyndun. Cruz ætlar að taka sér sex mánaða frí til að læra ljósmyndun og eyða meiri tíma með nýja kærastanum sínum, hinum nýskilda Tom Cruise.

SPÆNSKA blómarósin Penelope Cruz ætlar nú að taka sér frí frá leiklistinni til að sinna aðaláhugamáli sínu, ljósmyndun.

Cruz ætlar að taka sér sex mánaða frí til að læra ljósmyndun og eyða meiri tíma með nýja kærastanum sínum, hinum nýskilda Tom Cruise.

"Mig hefur langað að læra ljósmyndun síðan ég var fimmtán ára en hef aldrei fundið mér tíma til að læra hana almennilega," sagði hin snoppufríða Cruz í viðtali á dögunum.

Cruz hefur verið mikið í fjölmiðlum að undanförnu síðan hún og áðurnefndur Cruise opinberuðu samband sitt á frumsýningu nýjustu myndar hennar, Captain Corelli's Mandolin.