Baltasar Kormákur var með mörg járn í eldinum í Cannes.
Baltasar Kormákur var með mörg járn í eldinum í Cannes.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Það er yfirdrifið nóg að gera hjá Baltasar Kormáki að vanda. Og það á sjálfsagt ekki eftir að minnka eftir velgengni 101 Reykjavík. Hildur Loftsdóttir hringdi í leikstjórann.

KVIKMYND Baltasars Kormáks 101 Reykjavík, sem byggð er á samnefndri skáldsögu Hallgríms Helgasonar, var frumsýnd í Los Angeles í gær og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda þar í borg. Ekki nóg með það heldur fékk myndin frábærar viðtökur í Danmörku þar sem myndin var frumsýnd viku fyrr, en danskir blaða- og sjónvarpsmenn gerðu sér sérstaka ferð til Íslands til að taka leikstjórann forvitnilega tali. Ekki vantaði heldur hrósið þegar 101 Reykjavík var sýnd í New York fyrir nokkru, og ef menn kíkja inn á kvikmyndasíðuna Rotten Tomatos, þar sem helstu kvikmyndagagnrýnendur Bandaríkjanna láta álit sitt í ljós, sést að myndin fær 83% jákvæða dóma sem þykir sérlega gott. Þetta hlýtur óneitanlega að hafa góð áhrif á dreifingu myndarinnar í Bandaríkjunum og jafnvel annars staðar í heiminum.

New York skiptir miklu máli

"Myndin opnaði fyrst í New York og eftir það byrjaði boltinn að rúlla. Byrjað var að panta hana fyrir aðrar stórar borgir í Bandaríkjunum, sem hefði sjálfsagt ekki gerst ef hún hefði ekki gengið vel Í New York," segir Baltasar Kormákur sem er hæstánægður með viðtökurnar. "Og dómarnir úr blöðunum í Los Angeles eru ekki komnir inn á Rotten Tomatoes-síðuna þannig að prósentan þar á sjálfsagt eftir að hækka."

Það var yfirgagnrýnandi LA Times sem dæmdi myndina, en hann er þekktur fyrir að finna myndum flest til foráttu. Það er því mikið hrós fyrir aðstandendur 101 Reykjavík, sem ætti að ná því að ná mestri dreifingu íslenskra kvikmynda. Baltasar segir að hún verði frumsýnd í Sviss í vikunni, Hong Kong, auk Bretlands, Skandinavíu allri og brátt í Frakklandi, en íslenskum kvikmyndum hefur vegnað lítið þar, svo spennandi er að vita hvernig þessari mynd mun ganga.

Baltasar heldur að velgengni myndarinnar megi m.a. þakka því að fólki finnist sagan mjög óvenjuleg og að hún sé vel leikin en Hilmar Snær, Viktoria og Hanna María fá góða dóma víðast hvar.

"Þetta er líka saga sem gæti í rauninni gerst hvar sem er, en það gerir hana "exotískari" að hún skuli gerast á Íslandi," segir leikstjórinn.

Spenntur fyrir Hafinu

Sömuleiðis ætti velgengni 101 Reykjavík að auðvelda framleiðslu kvikmyndarinnar A Little Trip To Heaven sem Baltasar mun gera í Hollywood snemma næsta árs.

"Já, félagi minn í Los Angeles segir mér að það fyrsta sem allir í kvikmyndageiranum geri á morgnana sé að lesa kvikmyndagagnrýni LA Times."

-Verður A Little Trip To Heaven mjög persónuleg mynd?

"Ég er að fara að taka upp Hafið núna í október og það er orðið mjög persónulegt. Maður fer inn í verkefnin og setur sálina í þau og þá verða þau persónuleg. Hafið er kannski næst mér einmitt núna, en það er satt að A Little Trip To Heaven er mín saga frá upphafi til enda."

-Hvort ertu spenntari yfir því að taka upp Hafið eða fara til Hollywood?

"Ég verð að segja að ég er farinn að verða mjög spenntur að gera Hafið, en svo er fullt af öðrum hlutum í deiglunni sem ég er ekki farinn að skoða. Akkúrat núna er ég spenntastur fyrir Hafinu."

Þetta er bara fyndið

"Svo reyndar er ég að pæla í því hvort ég fari til Spánar að leika í einni bíómynd. Það er kvikmynd sem heitir Eleven Toys um Ángela Molina og bróður hennar Mikki Molina sem hafa verið að leika í kvikmyndum Almodovar." Einnig mun Eloy Azorín leika í myndinni en hann lék soninn sem lést í kvikmyndinni Allt um móður mína, en honum kynntist Baltasar þegar þeir voru báðir kynntir sem ungir og upprennandi leikarar á Shooting Star-dagskránni á seinustu kvikmyndahátíð í Berlín.

"Ég veit ekki hvort það gengur upp að ég fari út að leika í henni, en hún verður tekin í Madrid núna í september."

-Hefurðu ekki allt of mikið að gera? Ferðu ekki bara á taugum?

"Nei nei, ég hef bara gaman af þessu," segir Baltasar hálfhlæjandi. "Ég er að fara til Finnlands að leika í mynd í einn dag. Ég veit ekki hver leikstjórinn er. Framleiðandinn bað mig um þetta og ég sagði bara já, mér fannst það fyndið."