Whitney Houston ásamt uppsprettu vandræða sinna.
Whitney Houston ásamt uppsprettu vandræða sinna.
FJÖLSKYLDA söngkonunnar Whitney Houston hefur nú grátbeðið hana um að fara frá eiginmanni sínum, Bobby Brown. Foreldrar hennar, John og Cissy, telja að lífsstíll tengdasonarins muni á endanum koma dóttur þeirra í gröfina.

FJÖLSKYLDA söngkonunnar Whitney Houston hefur nú grátbeðið hana um að fara frá eiginmanni sínum, Bobby Brown.

Foreldrar hennar, John og Cissy, telja að lífsstíll tengdasonarins muni á endanum koma dóttur þeirra í gröfina.

Áhyggjurnar hófust fyrir alvöru í fyrrasumar þegar yfirvöld hótuðu að taka dóttur Whitney og Bobbys, Bobbi, frá foreldrum sínum vegna meintrar eiturlyfjaneyslu þeirra.

Þau John og Cissy segjast þekkja sína stúlku og kenna Bobby einum um allt sem miður hefur farið í hennar lífi. Það eina sem þau telja Bobby til tekna er að hann er Bobbi góður faðir.