Leikstýran tilvonandi, Christina Ricci.
Leikstýran tilvonandi, Christina Ricci.
LEIKKONAN Christina Ricci hefur ákveðið að setjast í leikstjórastól og leikstýra sinni fyrstu kvikmynd. Myndin, sem mun bera nafnið Speed Queen, segir sögu stúlku sem vinnur á skyndibitastað.

LEIKKONAN Christina Ricci hefur ákveðið að setjast í leikstjórastól og leikstýra sinni fyrstu kvikmynd.

Myndin, sem mun bera nafnið Speed Queen, segir sögu stúlku sem vinnur á skyndibitastað. Hún er í slagtogi við hóp furðufugla og endar svo á dauðadeild í fangelsi.

Ricci ætlar einnig að fara með hlutverk í myndinni, sem mun einkennast af gálgahúmor.

Þótt þetta sé frumraun hennar á leikstjórasviðinu hefur hin 21 árs gamla Ricci þó reynslu af framleiðslu og leik í kvikmyndum.