Freddie Prinze Jr. og unnustan Sarah Michelle Gellar.
Freddie Prinze Jr. og unnustan Sarah Michelle Gellar.
LEIKKONAN Sarah Michelle Gellar hefur lagt blátt bann við því að unnusti hennar, kvennagullið Freddie Prinze Jr., fækki fötum í nýjustu kvikmynd sinni.

LEIKKONAN Sarah Michelle Gellar hefur lagt blátt bann við því að unnusti hennar, kvennagullið Freddie Prinze Jr., fækki fötum í nýjustu kvikmynd sinni.

Freddie er nú við tökur á myndinni Summer Catch og í einu atriðanna stóð til að hann beraði á sér botninn.

Þegar Sarah frétti af því varð hún víst ekki par ánægð og heimtaði að unnustinn léti breyta handriti myndarinnar. Að hennar sögn á hún að vera eina konan sem fær að virða fyrir sér kroppinn á Freddie.

Freddie lét aðstandendur myndarinnar finna staðgengilsbossa fyrir sig og hafði þetta um málið að segja: "Það á enginn að fá að sjá á mér afturendann nema Sarah."