BÁTSLENGD var á milli fremstu keppenda eftir fyrsta legginn í Hvammsvíkurmaraþoninu í kajakróðri sem haldið var í gær. Keppendur voru 21, þar af tvær konur, og voru ræstir við Geldinganes kl. 10 í gærmorgun.

BÁTSLENGD var á milli fremstu keppenda eftir fyrsta legginn í Hvammsvíkurmaraþoninu í kajakróðri sem haldið var í gær. Keppendur voru 21, þar af tvær konur, og voru ræstir við Geldinganes kl. 10 í gærmorgun. Fyrir höndum var mikil þolraun, 42 kílómetra róður að Hvammsvík í Hvalfirði.

Sjórinn var rennisléttur við Geldinganesið en fyrir Kjalarnesi var norðvestanstrekkingur. Því gaf nokkuð á bátana og talið var líklegt að bestu tímarnir yrðu nokkru lakari en í fyrra.