HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir portúgölskum karlmanni sem handtekinn var á Keflavíkurflugvelli með um 2.500 e-töflur innanklæða hinn 3. ágúst sl. Gæsluvarðhaldið var framlengt í sex vikur, eða þar til dómur fellur.

HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir portúgölskum karlmanni sem handtekinn var á Keflavíkurflugvelli með um 2.500 e-töflur innanklæða hinn 3. ágúst sl.

Gæsluvarðhaldið var framlengt í sex vikur, eða þar til dómur fellur.

Mikill fjöldi "burðardýra" hefur verið handtekinn undanfarið. Slíkir aðilar eru yfirleitt ófúsir til samstarfs og afplána frekar þunga dóma en að upplýsa um samverkamenn.