Tónskáldið, Sigurður Sævarsson.
Tónskáldið, Sigurður Sævarsson.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
ÍSLENSK ópera, Z-ástarsaga eftir Sigurð Sævarsson, verður frumsýnd í Dráttarbrautinni í Keflavík í kvöld kl. 19. Óperan er byggð á samnefndri sögu Vigdísar Grímsdóttur.

ÍSLENSK ópera, Z-ástarsaga eftir Sigurð Sævarsson, verður frumsýnd í Dráttarbrautinni í Keflavík í kvöld kl. 19. Óperan er byggð á samnefndri sögu Vigdísar Grímsdóttur. Það er óperufélagið Norðuróp sem setur sýninguna upp, en Norðuróp er félag sem hefur það að markmiði að kynna almenningi óperur; setja upp óperusýningar og gefa ungu og efnilegu hæfileikafólki tækifæri á að spreyta sig í samkeppnisharðri listgrein og öðlast þar með dýrmæta reynslu. Aðalforsprakki að stofnun Norðuróps var Jóhann Smári Sævarsson óperusöngvari og bróðir Sigurðar, en Jóhann Smári á að baki níu ára feril sem óperusöngvari heima og erlendis. Húsnæði Dráttarbrautarinnar er í laginu eins og tónleikasalur, þ.e. langt og mjótt og mikil lofthæð, sem tryggir góðan hljómburð en er hrátt og gefur því mikla möguleika á sýningu sem er óhefðbundin. Það er einnig óhefðbundið að hljóðgervlar leysa af hólmi hefðbundna sinfóníuhljómsveit.

Sagan um Zetu

Söguþráður óperunnar er í stuttu máli sá að óperan gerist eina kvöldstund. Hún hefst á því að Anna er á leið í sumarbústaðinn sinn að vetri til. Hún er mjög veik og ætlar að stytta sér aldur þar. Á öðrum stað bíður Zeta ástkona Önnu. Hún veit hvað Anna hyggst gera. Arnþrúður, systir Önnu, kemur til Zetu og er að leita að systur sinni, þar sem hún hafði útskrifað sig fárveik af sjúkrahúsinu. Zeta segir ekkert, þó hana langi til þess. Hún hefur lofað Önnu að segja engum fyrr en allt er yfirstaðið. Sagan færist á milli Önnu og Zetu. Anna er með poka fullan af bréfum frá Zetu og hún fer að lesa þau, eitt og eitt og kastar þeim síðan í arineldinn. Á meðan rifjar Zeta upp tíma þeirra saman og ljóð sem Anna hefur ort og gefið henni.

Sigurður Sævarsson tónskáld segist hafa legið mikið yfir sögum Vigdísar Grímsdóttur og ljóðum. "Svo var það 1995 að ég las Z-ástarsögu. Þá var ég farinn að leita að texta fyrir óperu, og las bókina svolítið með það í huga. Ég fann strax að þetta var mjög ljóðrænn, skýr og hreinn texti og að hann myndi koma vel út sunginn. Ég fór að taka út kafla og setti þetta upp sem leikrit, sendi textann þannig styttan til Vigdísar og hún var ánægð með þetta. Ég ætlaði að hafa eitt karlmannshlutverk með í óperunni, en fannst svo að það yrði stílbrot og ákvað að hafa bara þrjár kvenpersónur í verkinu; einfalt." Sigurður segir að tónlistin sé svolítið í ætt við kvikmyndatónlist. "Tónlistin er ekki fyrirferðarmikil; ég er að búa til umhverfi fyrir orð Vigdísar. Þegar ég var búinn að velja textann, var ekkert ákveðið með tónlist. Ég byrjaði bara á fyrsta orðinu, og samdi þetta eftir stemmningunni. Verkið er samið við þennan texta nákvæmlega og ekkert annað. Það eru lög, eða aríur, eða hvað sem þú vilt kalla það, inn á milli, en ég er mjög hrifinn af söngles-stílnum. Debussy hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér og verk hans Pellas og Melissande og þeir sem þekkja það verk vita hvað ég á við." Hljómsveitin er sett saman af hljóðgervlum; tvö hljómborð eru með strengjaraddir, eitt er með fagott, óbó og klarinett, það fjórða með horn og flautu og eitt er bara píanó. Sigurður segist ekki hafa hugsað hljómsveitarleikinn fluttan á þennan hátt í upphafi. "Þessi hugmynd kom bara upp í vetur, þegar við vorum að velta því fyrir okkur að setja verkið upp. Auðvitað er gaman að vera með stóra hljómsveit, en þetta var möguleiki sem við ákváðum að prófa. Ég hef þó breytt "hljómsveitinni" svolítið eftir að við fórum að æfa, þannig að þetta er sniðið að þessum flutningi, en ekki einhverri hljómsveit sem upphaflega var hugsað að léki með."

Ljóðasöngur eða innileg ópera

Sigurður segir að sér hafi ekkert vaxið í augum að semja óperu. "Ég sá fyrir mér strax í byrjun einfalt verk, sem hægt yrði að ferðast með og væri kannski einhvers konar millibil á milli þess að vera ljóðatónleikar og innileg ópera eins og ég kalla það. Mér hefur alltaf fundist góðir ljóðasöngvarar sem túlka vel, geta búið til litla óperu úr hverju lagi sem þeir syngja. Ég ætlaði aldrei að hafa þetta mjög stórt verk. Það er synd þegar menn eru búnir að semja eitthvað stórt sem verður svo aldrei flutt og endar uppi á háalofti."

Þeir bræður Sigurður og Jóhann Smári fengu starfslaun listamanna, sem urðu til þess að hægt var að koma þessu óperuverkefni af stað, og Sigurður er þegar farinn að leggja drög að næstu óperu, en það er Hallgrímur Helgason sem semur fyrir hann óperutextann. "Sagan gerist í brúðkaupi, og sú ópera er á byrjunarreit."

Sigurður Sævarsson segist hafa fylgst með umræðum um óperulist að undanförnu. "Ég skil vel að fólk sé ekkert spennt fyrir því að Íslenska óperan sé að setja upp mikið af nútímaverkum. Við heyrum kannski tvær óperur þar á ári, og það er ekki sambærilegt við fólk í Evrópu sem getur séð nýja óperu í hverri viku án þess að þurfa að fara langt. Þar er krafan um eitthvað nýtt skiljanlegri." Sigurður segist hlynntari því að minni hús og sjálfstæðir hópar taki að sér að kynna nýja óperutónlist. "Flestar nútímaóperur eru ekki svo stórar í sniðum og eru gjarnan samdar fyrir smærri hljóðfærahópa. Það gerir þetta auðveldara. Ég tala nú ekki um ef þetta er styrkt eitthvað af hinu opinbera, þá er auðveldara fyrir fólk að safna því annars staðar sem uppá vantar til að hlutirnir gangi upp."

Í Z-ástarsögu er Jóhanna Linnet í hlutverki Zetu. "Ég þekki hana frá því við sungum saman í La Bohème í Borgarleikhúsinu og hún skaut upp í kollinum á mér öðru hvoru meðan ég var að semja þetta." Ingveldur Ýr Jónsdóttir er í hlutverki Önnu og Bryndís Jónsdóttir í hlutverki Arnþrúðar. Leikstjóri sýningarinnar er Helga Vala Helgadóttir sem útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands vorið 1998. Hún hefur leikið hjá Leikfélagi Akureyrar og The New Perspective Theatre company í Englandi. Sigurður Sævarsson stjórnar sjálfur hljómsveit hljómborðanna.

Óperuskáldið er söngvari að mennt

Sigurður hóf söngnám við Tónlistarskólann í Keflavík hjá Árna Sighvatssyni. Þar var hann í rúmt ár. Þaðan lá leiðin í Nýja tónlistarskólann í Reykjavík. Kennari hans þar var Sigurður Demetz Franzson. Eftir að hann hætti að kenna við skólann fór Sigurður til Alinu Dubik við sama skóla og lauk VIII. stigsprófi vorið 1994. Á þessu tímabili söng Sigurður við ýmis tækifæri, bæði á tónleikum og í óperum. Þar á meðal í La Bohème í Borgarleikhúsinu, Ahmal og næturgestunum, Évgeníj Onegin, Álfadrottningunni og Töfraflautunni í uppsetningu Nýja tónlistarskólans. Haustið 1994 hóf Sigurður svo söngnám við Boston University. Aðalkennari hans þar var William Sharp. Sigurður söng eitt af aðalhlutverkunum í uppfærslu óperudeildar skólans á nýrri óperu, Freshwater, eftir Bretann Andy Vores og minni hlutverk í óperunum "A month in the Country" eftir Lee Hoiby og "Count Ory" eftir Rossini. Hann var einnig einn af raddstjórum kirkjukórs skólans og söng einsöng með þeim við ýmis tækifæri. Einnig söng Sigurður utan skólans, t.d. einsöng með Back Bay Chorale í Boston, Providence Singers í Providence og Moon Stone Opera í Boston.

Á öðru ári hóf Sigurður einnig nám við tónsmíðadeild skólans.

Vorið 1997 lauk Sigurður svo mastersprófi bæði í söng og tónsmíðum.