ÞÚ ert í vestur og heldur á 10 háspilapunktum. Makker þinn hefur opnað á 15-17 punkta grandi, en samt hafa mótherjarnir göslast upp í fjóra spaða. Þetta er ósvífni og þeir verða látnir blæða.

ÞÚ ert í vestur og heldur á 10 háspilapunktum. Makker þinn hefur opnað á 15-17 punkta grandi, en samt hafa mótherjarnir göslast upp í fjóra spaða. Þetta er ósvífni og þeir verða látnir blæða.

Norður
ÁG876
8
4
1087652

Vestur
4
KD1095
K976
D43

Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 grand 2 spaðar
3 hjörtu 4 spaðar Pass Pass
Pass
Þú trompar út, enda ljóst að NS fá varla marga slagi til hliðar við spaðann. Því er um að gera að fella saman trompin þeirra. Sagnhafi tekur á spaðaás, spilar tígli á ás og ... Hafirðu einhverjar athugasemdir er þetta rétti tíminn til að koma þeim á framfæri.

Norður
ÁG876
8
4
1087652

Vestur Austur
4 K5
KD1095 Á76
K976 D1082
D43 ÁKG9

Suður
D10932
G542
ÁG53
--

Tígulkóngurinn þinn verður að fara undir ásinn! Ef ekki, gerist þetta: Sagnhafi trompar tígul, trompar lauf, trompar tígul og enn lauf. Spilar svo tígulgosa og hendir hjarta! Þú færð á kónginn og getur ekki trompað út. Sagnhafi nær því að trompa á víxl og fær samtals níu slagi á spaða og einn á tígulás.

Brids er einfalt spil.