KIRKJUKÓR Möðruvallakirkju ásamt organistanum Birgi Helgasyni mun heimsækja Elliheimilin á Hlíð og Kjarnalundi á morgun, sunnudag, og syngja þar við messur.
KIRKJUKÓR Möðruvallakirkju ásamt organistanum Birgi Helgasyni mun heimsækja Elliheimilin á Hlíð og Kjarnalundi á morgun, sunnudag, og syngja þar við messur.
Á báðum þessum stöðum er heimilisfólk sem á rætur í Möðruvallaprestakalli og ættingja og vini í kórnum.
Í guðsþjónustunni gefst einnig gott tækifæri fyrir aðstandendur til að eiga gæðastund með ættingjum og vinum.
Guðsþjónustan á Hlíð er kl. 14 á sunnudaginn og kl. 16 í Kjarnalundi.
Prestur í báðum messunum er sr. Gylfi Jónsson, heimilisprestur á Hlíð.