SÍÐUSTU misseri hefur verið gert verulegt átak til að fegra og snyrta sveitir landsins og má sjá þess stað víða þegar horft er heim á sveitabæi. Meðal annars hefur miklu af ónýtum bílum og vélum verið hent og byggingar málaðar.
SÍÐUSTU misseri hefur verið gert verulegt átak til að fegra og snyrta sveitir landsins og má sjá þess stað víða þegar horft er heim á sveitabæi. Meðal annars hefur miklu af ónýtum bílum og vélum verið hent og byggingar málaðar. Magnús Gunnlaugsson, bóndi í Miðfelli í Hreppum, lætur ekki sitt eftir liggja í þessum efnum og var að mála fjárhúsin sín þegar fréttaritara bar að með myndavélina á dögunum.