HREFNA Lárusdóttir opnar sýningu á vatnslitamyndum í Galleríi Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6, í dag, laugardag, kl. 14. Hrefna er Reykvíkingur, en hefur verið búsett erlendis í 29 ár. Sýningin nefnist Heima og heiman.

HREFNA Lárusdóttir opnar sýningu á vatnslitamyndum í Galleríi Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6, í dag, laugardag, kl. 14. Hrefna er Reykvíkingur, en hefur verið búsett erlendis í 29 ár. Sýningin nefnist Heima og heiman. Hrefna hefur áður sýnt akrýl- og vatnslitamyndir í Reykjavík, Þýskalandi, Lúxemborg og Ísafirði.

Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18 og stendur til 16. september.