RAGNHILDUR Sigurðardóttir, GR, lék aftur á 79 höggum á öðrum keppnisdegi á Evrópumóti kvenna í golfi sem nú stendur yfir á Ítalíu. Ragnhildur hefur því leikið á 158 höggum og er í 55.-58. sæti af 111 keppendum.
RAGNHILDUR Sigurðardóttir, GR, lék aftur á 79 höggum á öðrum keppnisdegi á Evrópumóti kvenna í golfi sem nú stendur yfir á Ítalíu. Ragnhildur hefur því leikið á 158 höggum og er í 55.-58. sæti af 111 keppendum. Kristín Elsa Erlendsdóttir, GK, lék annan hringinn í gær á 82 höggum en þann fyrsta lék hún á 85 höggum. Hún er því samtals á 167 höggum og er í 97.-98. sæti.