RÓSASÝNING er þessa dagana í Blómasmiðju Ómars í Keflavík. Rósasýningin stendur fram á sunnudag. Viðskiptavinir verslunarinnar og aðrir gestir geta greitt fallegustu rósinni atkvæði sitt og sú sem flest fær verður útnefnd Suðurnesjarósin.

RÓSASÝNING er þessa dagana í Blómasmiðju Ómars í Keflavík.

Rósasýningin stendur fram á sunnudag. Viðskiptavinir verslunarinnar og aðrir gestir geta greitt fallegustu rósinni atkvæði sitt og sú sem flest fær verður útnefnd Suðurnesjarósin. Að keppni lokinni verður dregið úr innsendum atkvæðaseðlum og sá heppni fær blómvönd.

Blómasmiðjan flutti nýlega starfsemi sína að Hafnargötu 32. Þar verður sýningin opin í dag frá klukkan 10 til 21 og til 19 á morgun. Í tilefni ljósanætur býður verslunin 20% afslátt af öllum kertum í dag.