BANDALAG íslenskra leikfélaga opnar nýjan vef í húsakynnum sínum á Laugavegi 96, 2. hæð í dag, laugardag, kl. 16. Vefurinn hefur vefslóðina www.leiklist.is og mun fjalla um leiklist á víðum grundvelli.

BANDALAG íslenskra leikfélaga opnar nýjan vef í húsakynnum sínum á Laugavegi 96, 2. hæð í dag, laugardag, kl. 16. Vefurinn hefur vefslóðina www.leiklist.is og mun fjalla um leiklist á víðum grundvelli. Á vefnum verða leiklistarfréttir, gagnrýni, greinar og upplýsingar um leiklist.

Stærsta leikritasafn landsins verður aðgengilegt í gagnagrunni á vefnum og fólk getur nýtt sér ýmsa leitarmöguleika til að finna og panta leikrit sem það hefur áhuga á. Verslun bandalagsins með förðunarvörur og aðrar vörur tengdar leiklist verður á vefnum og hægt verður að panta vörur á aðgengilegan hátt. Spjallþráðum verður haldið úti þar sem umræður verða um allt sem viðkemur leiklist.