ÍSLAND leikur lokaleik sinn í forkeppni Evrópumótsins í körfuknattleik í dag, gegn liði Íra, og hefst leikurinn kl. 16.30 í Njarðvík. Írar mæta með öflugt lið sem m.a.

ÍSLAND leikur lokaleik sinn í forkeppni Evrópumótsins í körfuknattleik í dag, gegn liði Íra, og hefst leikurinn kl. 16.30 í Njarðvík.

Írar mæta með öflugt lið sem m.a. sigraði lið Sviss á fyrir rúmri viku á Írlandi, og þar má finna leikmenn sem leika sem atvinnumenn í efstu deild á Grikklandi, Spáni, í Frakklandi og Portúgal. Íslenska landsliðshópurinn er skipaður sömu leikmönnum og léku gegn Sviss sl. miðvikudag, en Írar eiga í harðri baráttu við Finna og Sviss um efstu sæti D-riðils forkeppninnar, en íslenska liðið hefur tapað öllum leikjum sínum til þessa.