GEIR A. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Reyðaráls, sagðist vera mjög sáttur við úrskurð Skipulagsstofnunar. "Ég er að sjálfsögðu ánægður með þessa niðurstöðu.

GEIR A. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Reyðaráls, sagðist vera mjög sáttur við úrskurð Skipulagsstofnunar.

"Ég er að sjálfsögðu ánægður með þessa niðurstöðu. Þetta er staðfesting á því sem við lögðum upp með að álverið gæti lifað í sátt og samlyndi við umhverfi sitt," sagði Geir.

Geir sagði að þau skilyrði sem Skipulagsstofnun setti í úrskurði sínum fyrir starfsemi álversins mundu ekki valda Reyðaráli neinum erfiðleikum.

Geir sagði að efnislega staðfesti úrskurðurinn það sem Reyðarál hefði lagt upp með. Hann sagðist ekki geta svarað því hvort einhver kæmi til með að kæra úrskurðinn, en hann sagðist ekki sjá fram á að forsendur fyrir kæru gætu orðið mjög sterkar.