HJÖRTUR Jónsson og Ísak Guðjónsson, keppendur í alþjóðlega rallinu Rally Reykjavík, féllu úr keppni í gær er þeir veltu bifreið sinni tvisvar, í fyrra skiptið á sérleið um Gunnarsholt, þar sem þessi mynd var tekin.

HJÖRTUR Jónsson og Ísak Guðjónsson, keppendur í alþjóðlega rallinu Rally Reykjavík, féllu úr keppni í gær er þeir veltu bifreið sinni tvisvar, í fyrra skiptið á sérleið um Gunnarsholt, þar sem þessi mynd var tekin. Þeim tókst að gera við bifreiðina í hádegishléi en för þeirra endaði ekki vel á Lyngdalsheiðinni þegar þeir veltu bifreið sinni í annað sinn og urðu þar með að hætta keppni.

Feðgarnir Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson á Subaru Impreza bættu við forskot sitt í rallinu í gær og hafa nú rúmlega þriggja og hálfrar mínútu forskot á Sigurð Braga Guðmundsson og Rögnvald Pálmason á MG Metro.