ÖRTÓNLEIKAR með hljómsveitinni INRI verða í listamiðstöðinni Straumi við Reykjanesbraut í dag, laugardag, kl. 17. Hljómsveitin var stofnuð 1988 og hefur starfað með hléum og mannabreytingum síðan.
ÖRTÓNLEIKAR með hljómsveitinni INRI verða í listamiðstöðinni Straumi við Reykjanesbraut í dag, laugardag, kl. 17.
Hljómsveitin var stofnuð 1988 og hefur starfað með hléum og mannabreytingum síðan. Hljómsveitin er skipuð Hilmari Páli Marinóssyni trommuleikara, Sigurbirni Ingvarssyni gítarleikara, Magnúsi Jenssyni bassaleikara og Inga Jenssyni söngvara.