Á VÍNBARNUM við Kirkjutorg verða haldnir sérstakir Gallo of Sonoma-víndagar frá 30. ágúst til 5. september. Boðið verður upp á fjölmörg gæðavín frá þessum þekkta framleiðanda.

Á VÍNBARNUM við Kirkjutorg verða haldnir sérstakir Gallo of Sonoma-víndagar frá 30. ágúst til 5. september. Boðið verður upp á fjölmörg gæðavín frá þessum þekkta framleiðanda. Á sama tíma verður boðið upp á sérstakan vínseðil á veitingastaðnum Við Tjörnina.

Gallo-dagarnir eru haldnir í tilefni af heimsókn Jean Arnold, svæðisstjóra E&J Gallo á Norðurlöndum, og Greg Smith, sölustjóra E&J Gallo í Evrópu. Þeir munu standa fyrir sérstakri kynningu á Gallo-víni á Vínbarnum mánudagskvöldið 1. september kl. 8. Smakkaðar verða nokkrar tegundir Gallo og boðið upp á viðeigandi smárétti með. Kynningin er öllum opin og kostar 1.000 kr. á manninn.

Þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður eru áhugasamir beðnir að bóka sig í kynninguna á Vínbarnum.