Reykjavík - Hjá fasteignasölunni Hóll er nú í einkasölu einbýlishús í Hamrahlíð 13 í Reykjavík. Þetta er steinhús, byggt 1953 og er það kjallari og tvær hæðir. Alls er húsið að flatarmáli um 300 ferm.
"Þetta er glæsilegt og sérlega vandað hús á þessum einstaka stað í Hlíðunum," sagði Páll Ragnarsson hjá Hóli. "Á efri hæð hússins eru fjögur svefnherbergi og tvö herbergi eru í kjallara, en hann er með sérinngangi og henta því herbergin þar vel til útleigu.
Á miðhæð er rúmgóð stofa, borðstofa aðskilin frá stofu með rennihurð með frönskum gluggum. Eldhús og búr er á miðhæð. Glæsilegur stigi er upp á aðra hæð. Svona eignir sjást sjaldan á markaðinum í dag. Húsið stendur á stórri lóð, um 1300 fermetra. Ásett verð er 28,5 millj. kr."