Þetta er steinhús á tveimur hæðum, alls 193,8 ferm., þar af er innbyggður bílskúr 29 ferm. Ásett verð er 22,9 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Borgum.
Þetta er steinhús á tveimur hæðum, alls 193,8 ferm., þar af er innbyggður bílskúr 29 ferm. Ásett verð er 22,9 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Borgum.
Kópavogur - Hjá fasteignasölunni Borgir er nú í sölu raðhús að Haukalind 5 í Kópavogi. Um er að ræða steinhús, byggt 1997 og er það á tveimur hæðum, alls 193,8 ferm., þar af er innbyggður bílskúr 29 ferm.

"Þetta er mjög fallegt hús," sagði Magnús Geir Pálsson hjá Borgum. "Komið er inn í anddyri með miklum fataskáp úr kirsuberjaviði. Hitalögn er í gólfi. Úr anddyri er innangengt í bílskúr. Frönsk kirsuberjaviðarhurð er inn í hol.

Úr holi er inngangur í þvottahús og geymslu. Í holi er og gengt í gestasnyrtingu og rúmgott forstofuherbergi með góðum gluggum og góðu útsýni. Úr holi er gengið upp steyptan stiga.

Á efri hæð eru tvö góð barnaherbergi, bæði með góðu útsýni, mjög rúmgóð stofa með útgangi út á svalir með miklu útsýni til austurs, norðurs og vesturs.

Eldhús er með glæsilegri tveggja veggja kirsuberjainnréttingu ásamt eyju, góðum borðkrók og útgengi út á rúmgóðan sólpall sem snýr í suður. Baðherbergið er einnig rúmgott með kirsuberjainnréttingu. Hjónaherbergi er með miklum kirsuberjaskáp.

Eftir er að klæða öll loft á efri hæð og gólfefni vantar að mestu. Lýsingu í húsi hannaði Lumex og gert er ráð fyrir innbyggðri halogenlýsingu í loftum.

Í húsinu er tölvunetlögn. Það eru tölvutenglar í öllum herbergjum ásamt síma- og sjónvarpstenglum ásamt símstöð og gert er ráð fyrir þjófa- og brunakerfi. Ásett verð er 22,9 millj. kr. og áhvílandi húsbréf 7,6 millj. kr."