Húsið er á tveimur hæðum og 235 ferm. að stærð, þar af er óskráð rými 40 ferm. og bílskúr 32 ferm. Ásett verð er 27,5 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Smáranum.
Húsið er á tveimur hæðum og 235 ferm. að stærð, þar af er óskráð rými 40 ferm. og bílskúr 32 ferm. Ásett verð er 27,5 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Smáranum.
Kópavogur - Fasteignasalan Smárinn hefur nú til sölu raðhús við Blikahjalla 6. Húsið er á tveimur hæðum og 235 ferm. að stærð, þar af er óskráð rými 40 ferm. og bílskúr 32 ferm. Ásett verð er 27,5 millj. kr.

"Þetta er glæsilegt raðhús og vel hannað, en það er teiknað af Kjartani Sveinssyni arkitekt, sagði Valþór Ólason hjá Smáranum. "Þar að auki stendur það á bezta stað í Suðurhlíðum Kópavogs."

Komið er inn í flísalagða forstofu og gestasalerni, en síðan kemur svefnherbergi með aukaherbergi inn af. Holið er flísalagt með stórum fataskáp með halogenlýsingu, en innangengt er í bílskúr og geymslu úr holi. Óuppgefið rými er um 40 ferm. Það er með litlum gluggum og notað sem herbergi.

Stiginn upp á efri hæðina er steyptur og mjög fallega flísalagður. Þar er gengið inn í hol og þaðan inn í borðstofu. Eldhúsið er með mjög fallegum innréttingum, hvíttuðum hlyni, en skápar í borðstofu eru úr kirsuberjaberjavið.

Stofan er stór með parketi og útgengt út á svalir sem snúa í hásuður. Í hinum enda stofunnar er útgengt út á lóð og fallega upphækkaða timburverönd á tveimur pöllum. Baðherbergi er með flísum í hólf og gólf, svefnherbergi með dúk, en hjónaherbergi með parketi og tveimur skápum. Garðurinn er mjög fallegur.