Á MARKAÐ eru komin sólhattshylki frá Futurebiotics sem innihalda einnig 500 mg af Ester-C-vítamíni og Propolis.
Á MARKAÐ eru komin sólhattshylki frá Futurebiotics sem innihalda einnig 500 mg af Ester-C-vítamíni og Propolis. Í fréttatilkynningu frá Eðalvörum segir að efnið styrki ónæmiskerfið og beri að nota það þegar umgangspestir ganga yfir, en ekki sé ráðlagt að taka nema tvö hylki á dag í stuttan tíma. Efnið fæst í apótekum í 50 hylkja glösum.