FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ Straumur hefur keypt rúmlega 10 milljónir að nafnverði í Olíuverslun Íslands hf. Eignarhlutur Straums í Olís er nú 6,45% eða 43,2 milljónir að nafnverði.
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ Straumur hefur keypt rúmlega 10 milljónir að nafnverði í Olíuverslun Íslands hf. Eignarhlutur Straums í Olís er nú 6,45% eða 43,2 milljónir að nafnverði.
Á fimmtudag, þegar tilkynnt var um viðskiptin, var lokaverð Olíuverslunar Íslands 5,20 á Verðbréfaþingi Íslands sem var15,6% hækkun frá fyrra degi.
Miðað við lokaverð Olíuverslunar Íslands á VÞÍ þann dag þá má áætla að kaupverð bréfanna hafi verið rúmar 52 milljónir króna.